RNS hefur látið þýða skýrslu varðandi sjóslysið þegar Gídeon sökk á Flæmska hattinum 25. maí 2005 á íslensku. Hægt er að nálgast skýrsluna bæði í enskri og íslenskri þýðingu á PDF formi hér.
Vatnsþéttleiki skipa
Vegna tillagna RNS í öryggisátt í nokkrum málum hefur Siglingastofnun Íslands unnið rannsóknarverkefni um vatnsþéttleika skipa. Hægt er að nálgast skýrsluna í heild sinni hér.
Skýrsla IMMA um M/S Jökulfell
Skýrsla Isle of Man Marine Administration (IMMA) vegna slyssins þegar M/S Jökulfell sökk NA af Færeyjum þann 7. febrúar 2005 er komin út. Hægt er að nálgast hana hér á PDF formi.
Björgunarþáttur sjóslyss: Skýrsla RNS vegna máls nr. 107/01
Í júlí 2002 fór samgönguráðuneytið þess á leit við RNS að björgunarþáttur sjóslyssins þegar Svanborg SH 404 fórst við Svörtuloft 7. desember 2001 yrði rannsakaður sérstaklega. Skýrslu RNS var skilað til ráðuneytisins í mars 2003. Samgönguráðuneytið hefur óskað þess að RNS birti hana á vefsíðu sinni og er hægt að nálgast hana hér á PDF formi.
Rannsóknarnefnd sjóslysa
Í nefndinni sem skipuð er af samgönguráðherra til fjögurra ára í senn sitja fimm menn. Nefndin kannar orsakir allra sjóslysa er íslensk skip farast. Nefndin rannsakar einnig öll slys þar sem manntjón verða svo og önnur sjóslys sem hún telur ríka ástæðu til að rannsaka. Nefndin fylgir í starfi sínu meginreglum laga um sjópróf og um skyldu manna til skýrslugjafar og um öflun sönnunargagna gilda sömu reglur og í opinberum dómsmálum. Rannsóknarnefndin skal að rannsókn lokinni semja ítarlega skýrslu um rannsóknir og niðurstöður þeirra þar sem meðal annars skal greint frá sönnuðum eða líklegum orsökum tjóns. Kostnaður við starfsemi nefndarinnar greiðist úr ríkissjóði.