RNS.IS    
English translation of regulationsEnglishFlokkunFundirLeitNefndinTenglasafnTilkynnaTillögurTölfræðiUpphafssíða
Skýrslur (1476)
124/09  13466-21.08.10
061/09  14801-21.08.10
009/10  10466-21.08.10
032/10  8023-21.08.10
026/10  11172-21.08.10
008/10  10756-21.08.10
150/09  12047-21.08.10
141/09  12466-21.08.10
139/09  12334-21.08.10
027/10  11563-02.06.10
 1 af 148   
Til bakaTil bakaPrentvæn útgáfa 003/10  - Brúarfoss 
  Brúarfoss, skipverji slasast við fall   
 Heimsóknir: 13297 Uppfært: 02.06.10 

  Brúarfoss
Skipaskr.nr.: 8914568
Smíðaður: Danmörku 1992 stál
Stærð:  brl; 7.676,00 bt
Lengd: 126,63 m Breidd: 20,53 m Dýpt: 10,70 m
Vél: MAK 8M 552C 5.400,00 kW Árgerð: 1992
Annað: 
Fjöldi skipverja: 11
Fiskistofa =>
Skip.is =>

Brúarfoss©Hilmar Snorrason 
 

 Atvikalýsing
 

Þann 27. desember 2009 var Brúarfoss við bryggju í Immingham.  Veður: Hægviðri og þurrt.

 

Skipverji stóð við gámastyttu (sjá mynd) yst á síðu stjórnborðsmegin á skipinu og var að sjóbúa gám á lúgu nr. 2.  Var hann að setja gámastöng í gám í þriðju hæð þegar hann missti jafnvægið og féll með gámastönginni um 5 metra niður á bryggjuna.  Hann var fluttur á sjúkrahús í Grimsby og í ljós kom að hann var brotinn á báðum ristum og baki.

 

 

 
 

 Við rannsókn kom fram
 
  • að skipverjinn var að sjóbúa gám í þriðju hæð á þilfari með því að setja gámastöng (lashing bar, sjá mynd) í ysta horn hans og stóð við það á gámastyttu alveg út í síðunni.  Honum tókst ekki festa stangarendann í gatið í gámnum og missti stöngina til hliðar.  Hann sleppti ekki takinu á henni fyrr en of seint en þá hafði hann missti jafnvægið og fallið í fríu falli niður á bryggjuna;
  • að skipverjinn var í sinni fyrstu ferð á skipinu og hafði verið 5 daga um borð.  Hann hafði ekki verið áður á flutningaskipi og því óvanur þessari vinnu.  Hann kvaðst hafa fengið góða tilsögn um meðferð þessara stanga og verið búinn að festa nokkrar áður en slysið varð;
  • að gámastöngin er 4,20 metra löng og 32 kg að þyngd;
  • að skipverjinn var búinn öllum öryggisbúnaði sem krafist var um borð;
  • að eftir atvikið sendi útgerðin út dreifibréf til allra skipa félagsins og vakti athygli á þessari hættu auk mögulegra aðgerða til að koma í veg fyrir að svona gæti gerst aftur.  Niðurstaðan var sú að hafist var handa við að setja vörn á gámastyttur (sjá mynd).

 
 

 Nefndarálit
 

Nefndin telur orsök slyssins vera þá að skipverjanum var gert að vinna starf við ófullnægjandi aðstæður. 

 

Nefndin fagnar þeim aðgerðum sem útgerð skipsins framkvæmdi í kjölfar slyssins.

 
 

Prentvæn útgáfa
  Til baka Til baka Upp Upp
EnglishFlokkunFundirLeitNefndinTenglasafnTilkynnaTillögurTölfræðiUpphafssíða
  
Velkomin(n) [38.107.191.81] fimmtudagur 09. september 2010 09:49 GMT
Flugst��in Stykkish�lmi s�mi: +(354) 552 5105
340 Stykkish�lmur fax: +(354) 551 5152
Iceland e-mail: rnsrnsis