Þar sem útgerðir og áhafnir skipa þeirra virðast almennt ekki framkvæma áhættumat um borð í skipum sínum auk þess sem ekkert sérstakt eftirlit er með slíku telur nefndin tilefni til að gera eftirfarandi tillögur til Samgöngustofu í öryggisátt:
Gert verði sérstakt kynningarátak fyrir útgerðir um gerð og framkvæmd áhættumats samkvæmt reglugerð.
Að skoðunarstofur verði upplýstar um ákvæði reglugerðar nr. 200/2007.
Að fært verði inn í skoðunarskýrslur upplýsingar um úttektir á framkvæmd áhættumats við árlegar skoðanir á skipum.
Afgreiðsla
Afgreiðsla Samgöngustofu barst með bréfi dagsett 18. október við drögum frá 30. ágúst 2019.