Ítrekað hafa komið upp atvik þar sem ekki hafa verið notaðar réttar upplýsingar um örugga siglingu á þessu svæði þrátt fyrir að þær væru til. Nefndin telur því ástæðu til gera eftirfarandi tillögur í öryggisátt til Samgöngustofu (nr. 1) og ráðuneytis samgöngu- og sveitastjórnarmála (nr. 2):
Að við reglulega búnaðarskoðun verði skoðað sérstaklega hvort sjókort og siglingaforrit séu lögleg og leiðrétt.
Að sett verði sérstök viðurlög ef slys og/eða önnur atvik sem rekja má til þess að sjókort og siglingaforrit séu ekki lögleg og leiðrétt.